Provence tómatar

Tómatar og ólívur eru það sem einkenna matarhefðir við Miðjarðarhafið og Provence í Frakklandi er þar engin undantekning. Tomates á la Provençal eru jafneinfaldir og þeir eru góðir.
Það sem þarf er:

Tómatar
Brauðrasp, heimatilbúið. Ristið brauðsneiðar í ofni og maukið í matvinnsluvél.
Steinselja, flatlaufa, söxuð
Hvítlaukur, fínt saxaður
Ólívuolía

Skerið tómatana í tvennt og hreinsið innan úr þeim með skeið.
Blandið saman brauðmylsnunni, saxaðri steinseljunni og hvítlauknum. Hlutföllinn geta verið breytileg en ágætt er að miðað við nokkurn veginn jafnt hlutfall á milli steinselju og brauðmylsnu og svo hvítlauk eftir smekk.
Setjið tómatana í fat og fyllið með brauðmylsnublöndunni. Hellið ólívuolíu yfir og setjið inn í 200 gráðu heitan ofn. Bakið í um 15 mínútur.
Frábært með t.d. lambakjöti

Sítrónukartöflur með hvítlauk og rósmaríni

6-8 kartöflur
1 sítóna skorin til helminga
1 hvítlaukur skorinn í tvennt (þverskorinn)
2-3 rósmaríngreinar
olía
salt

Kartöflur skornar í báta og settar í eldfast mót. Sítróna og hvítlaukur sett ofaná (sár snúa upp). Dreypið olíu yfir og setjið síðan rósmaríngreinar ofaná. Saltið eftir smekk. Bakið í 40 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar fallega gylltar á lit.

Góð tilbreyting með grillmat
Uppskrift fengin úr Gestgjafanum.